Vörulýsing
DIMMA TÁKNAR HAUSTIÐ OG AUKNA DIMMU. ILMURINN ER KRAFTMIKILL, KRYDDAÐUR OG ÁVAXTARÍKUR. HANN VEKUR MINNINGAR UM SKÓGARFERÐ, NÝFALLIN RAUÐBRÚN HAUSTLAUF OG BERJAMÓ. ILMURINN SAMANSTENDUR AF ÁVÖXTUM, KRYDDI, BARRTRJÁM OG VILLTUM BERJUM.
Fura / Kanill/ Sítrónubörkur
Sedrusviður / Hindber
Fléttur / Balsamþinur / Mosi
Ilmstrá eru góð leið til þess að veita heimilinu góðan ilm án þess að kveikja á kerti. Svörtu stráin eru sett ofan í glasið þar sem þau draga í sig ilmolíurnar. Ferskur ilmur er fenginn með því að snúa stráunum við af og til. Ilmurinn endist í 1-2 mánuði ef öll stráin eru notuð. Ilmurinn er mildari og endist lengur ef færri strá eru notuð.
Dimma heimilisilmur er í 125 ml flösku og honum fylgja svört bambusstrá.
Afhendingarmátar
Frí heimsending er á öllum pöntunum yfir 14.000 kr. Senda á pósthús 790 kr. Heimsending 1.090 kr. Sækja í verslun í Ólafsvík0 kr. Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur verið móttekin. Varan er send til viðskiptavinar með Íslandspósti og fær hann tölvupóst með sendingarnúmeri og helstu upplýsingum um leið og varan er skráð á pósthúsinu.
Um Útgerðin Ólafsvík
Útgerðin er ný verslun sem selur íslenska hönnun í bland við sælkeravörur og aðrar sérvaldar hönnunarvörur í gamla Pakkhúsinu í hjarta Ólafsvíkur.