Vörulýsing
Mjúk og þægileg samfella úr efni sem heldur sér vel eftir þvott. Samfellan er með falleg smáatriði eins og Gullkorn lógóið á annarri erminni, og tvo viðarhnappa á hálsmáli öðru megin.
Frábær grunnflík fyrir minnstu krílin! Passar vel með öðrum litum í Villvette ungbarnalínunni, og einnig hægt að nota með Svalen ungbarnalínunni frá Gullkorn.
Efni: 96% bómull, 4% spandex. (Oeko-Tex vottun)
Um Minimo
Minimo er verslun með barnavörur sem uppfylla kröfur nútímaforeldra. Við bjóðum upp á barnafatnað fyrir börn á aldrinum 0-10 ára í stærðum 50-140, ásamt barnavörum og hlutum í barnaherbergið frá spennandi vörumerkjum. Við leggjum áherslu á stílhreina hönnun og vandaðar vörur úr lífrænum eða náttúrulegum efnum.