Vörulýsing
Toy Story 4 Race Home
Skemmtileg Toy Story-útgáfa af hinu gamalkunna lúdóspili frá Cartamundi fyrir 2-4 leikmenn, 4 ára og eldri. Leikmenn velja sér lið og keppast um að vera fyrstir til að koma öllum liðsmönnum sínum heim með því að færa þá áfram um reiti eftir teningakasti. Einnig er hægt að klekkja á andstæðingunum með því að senda þá til baka ef þið lendið á sama reit. Hægt er að velja um lið Vidda, Bósa, Bóthildar eða Forka.
Afhendingarmátar
Senda á póstbox 937 kr. Pósthús 1.026 kr. Heimsending 1.420 kr. Sækja á lager á Akureyri 0 kr.
Um Kerti & Spil/Græni Unginn
Græni Unginn er barnavöruverslun sem sérhæfir sig í nauðsynlegum vörum fyrir börn og foreldra. Einblínum á umhverfisvænni kosti. Kerti og spil er gjafavöruverslun sem sérhæfir sig í vörum fyrir huggulega stund með fjölskyldu og vinum.